Stafræn sýningarleiðsögn
Út úr skugganum & Bakslag
Í tilefni af Hinsegin hátíð 2026 viljum við minna á að sýningarnar Út úr skuggunum og BAK/SLAG sem sýndar voru í Safnahúsinu á Húsavík í fyrra eru áfram aðgengilegar á izi.TRAVEL þar sem hægt er að skoða þær rafrænt. Hlekkur HÉR.
Sýningarnar fjalla báðar um hinsegin sögu, sýnileika og réttindi – hvor á sinn hátt.
Sýningin Út úr skugganum (Out of the Shadows) varpar ljósi á líf og baráttu hinsegin fólks í Þingeyjarsýslu og skiptist í þrjá hluta:
- Kynvilla – saga Guðmundar Sigurjónssonar, eina mannsins sem vitað er að hafi verið dæmdur árið 1924 samkvæmt eldri lögum gegn samkynhneigð. Sýningin rekur ferðalag hans frá Þingeyjarsýslu til Kanada og aftur heim.
- Ást og réttindi – brúðkaup, staðfest samvist og fjölskyldur hinsegin fólks í Þingeyjarsýslu, auk radda barna hinsegin og trans foreldra.
- Að sjást og heyrast – viðtöl við fólk úr samfélaginu sem lýsir því hvað sýnileiki þýðir í dag.
Hin sýningin, Bakslag, fjallar um sívaxandi andóf og þær hættur sem hinsegin og trans fólk mætir í samtímanum – bæði á Íslandi og erlendis. Á sýningunni má sjá portrettmyndir, tilvitnanir og hljóðupptökur sem minna okkur á að við getum ekki leyft okkur að þegja þegar mannréttindi eru í hættu.
Sýningarnar eru unnar samhliða og styðja hvor aðra: Önnur minnir á baráttuna fyrir sýnileika og réttindum, hin á ástæðurnar fyrir því að við verðum að halda áfram að standa vörð um þau.
Verkefnið er hluti af Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra og er styrkt af Norðurþingi og Uppbyggingarsjóði SSNE. Sýningarnar verða opnar út júlí.




