Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra haldin í annað sinn 2026

Viðburðastyrkir í boði!

Hinsegin hátíðin á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.-21. júní 2026. Verkefnið hlaut að nýju styrk úr Uppbyggingasjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra. 


Í ár verður sú nýjung í boði að búið er að opna fyrir umsóknir í viðburðapott þar sem hægt er að sækja um styrki fyrir viðburði á hátíðinni. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl nk. Sótt er um á rafrænu umsóknarblaði sem finna má HÉR.


Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni. Sveitarfélögin vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.


Þau sem vilja koma hugmyndum á framfæri, geta haft samband við Elísabetu Ögn verkefnastjóra hátíðarinnar í gegnum netfangið hinseginhatid@akureyri.is


DEILA

Fleiri fréttir og viðburðir

Fjölskyldufundur á bókasafninu í Eyjafjarðarsveit, texti á móti lituðum bókahaug.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 12. júní 2026
Föndrum nælur, lyklakippur, vinaarmbönd og fleira
Sólsetursplakat fyrir sundnámskeið í Eyjafjarðarsveit, með sundlaug, regnboga og tímanum 16:00–17:00.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 12. júní 2026
Regnbogalitir, tónlist og frítt í sund fyrir öll milli kl. 16-17
Veggspjald fyrir viðburðinn Regnbogabók fyrir bókasafnið, með íslenskum texta, 18. júní frá kl. 14:00 til 16:00.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 12. júní 2026
Hinsegin einstaklingar miðla sinni reynslu og bjóða upp á opið spjall