Hinsegin söguganga á Akureyri

Ókeypis gönguferð með íslenskri leiðsögn

Fræðstu um sögu hinsegin samfélagsins á Íslandi í þessari ókeypis sögugöngu um Akureyri.


Viðburðurinn er hluti af Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra 2026 og fer fram föstudaginn 19. júní næstkomandi.


Mæting er við Minjasafnskirkjuna og farið verður af stað þaðan klukkan 16:30. Áætlað er að gangan taki u.þ.b. 2 til 2,5 klukkustundir. Gestir eru vinsamlega beðnir um að mæta á staðinn 5-10 mínútum fyrir áætlaðann brottfarartíma.


Um er að ræða létta göngu um Innbæinn og miðbæinn þar sem sögufrægir staðir á Akureyri verða heimsóttir. Á leiðinni segir leiðsögumaður frá sögu hinsegin samfélagsins á Íslandi með sérstakri áherslu á Akureyri, samfléttaðri við bæjarsögu Akureyrar.

Leiðsögumaður er Rúnar Freyr Júlíusson. Hann er menntaður leiðsögumaður sem hefur, ásamt Ásu Sóley meðskipuleggjanda sínum, kynnt sér þetta viðfangsefni til þaula undanfarnar vikur


Ferðin er algjörlega ókeypis og engin skráningarskylda, bara mæta á staðinn! Þeir sem ætla sér að mæta eru þó vinsamlegast beðnir um að melda sig, ef þeir geta, á Facebook viðburðinn okkar: (Hlekkur)


Gönguferðin verður endurtekin með enskri leiðsögn laugardaginn 20. júní. Sami brottfarartími og upphafsstaður. Nánari upplýsingar er að finna á sér viðburði fyrir enskumælandi ferðina: (Hlekkur)


UPPLÝSINGAR

Staðsetning: Minjasafnskirkjan
Dagsetning: 19. júní 2026
Tími: 16:30 (Leiðsögnin tekur um 2 - 2.5 klst)

Enginn aðgangseyrir

DEILA

Fleiri fréttir og viðburðir

Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 3. júní 2026
tónleikar í Svarta Kassanum í Hofi á Akureyri
Litríkir partýhattar í krukku við hliðina á regnbogamerkinu „C“ og bleikum pompom-handverkssýningu.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 2. júní 2026
Námskeiðið veitir verkfæri til að bregðast við hatursorðræðu. Opnað fyrir alla, sérstaklega hinsegin fólk. Taktu þátt 18. júní!
Maður með regnbogahúfu stendur á útiviðburði og snýr að mannfjölda nálægt byggingu.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 2. júní 2026
Hinseginbaráttan, stúdentahreyfingin og mikilvægi þess að taka pláss!