Tónleikar með Benjamín Gísla
Tónleikar Í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík
Píanóleikarinn Benjamín Gísli heldur tónleika í Menningarhúsinu Bergi á Hinsegin hátíð. Þar mun hann leika eigin tónsmíðar í bland við íslenskar dægurlagaperlur í eigin útsetningum.
Um Benjamín Gísla,
Benjamín er einn af fremstu jazz píanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé jazzmenntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu—hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og spunakenndum köflum í anda Keith Jarrett. Fyrir hann er píanóið ekki bara hljóðfæri, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir, miðla tilfinningum og skapa tengingu við áheyrendur. Tónlistin hans er síbreytileg, liggur einhverstaðar á milli forms og frelsis, hefða og nýsköpunar.
www.benjamingisli.com
https://open.spotify.com/artist/6G6SkXGRHcuzHhIeQDgMfS...
https://www.youtube.com/watch?v=Q5aBRUp9PQc
UPPLÝSINGAR
Staðsetning: Menningarhúsið Berg á Dalvík
Dagsetning: 21.06.25
Tími: 20:00
Aðgangseyrir: 3500 kr.
Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
