Á móti straumnum
Áhrifaríkur fyrirlestur með Veigu Grétarsdóttur í menningarhúsinu Bergi
Veiga Grétarsdóttir flytur áhrifaríkan fyrirlestur með áherslu á léttleika og hagnýtingu fyrir áheyrendur. Fyrirlesturinn tekur á málefnum sem skipta máli og eiga brýnt erindi sem opnar frekar á samfélagslega umræða sem tekur á jafnréttis- og umhverfismálum samtímans. Hinsegin kvikmyn
Í fyrirlestrinum fjallar Veiga um sögu sína sem kona verandi föst í karlmannslíkama í 38 ár og fer yfir það hvernig það var að vera barn, unglingur og fullorðin og burðast alltaf með leyndarmálið um hver hún var. Hvernig feluleikurinn bugaði hana að lokum og varð að þunglyndi og sárum hugsunum um að deyja frekar en lifa áfram í sínum eigin líkama. Hún vil veita innblástur með vandaðri framsögu sem á erindi við alla sem þurfa að takast á við áskoranir, mótlæti eða vilja bæta árangur sinn.
Fyrirlesturinn ásamt fyrirspurnum stendur yfir í klukkutíma, þar sem mikið verður af myndefni og myndböndum, frásögn hennar til stuðnings.
Umsagnir
„Erindið var algjörlega magnað, bæði fróðlegt og grípandi. Veiga náði salnum algjörlega frá fyrstu mínútu og hleypti áheyrendum með í gegnum líf hennar sem bæði hefur verið súrt og sætt, sorglegt og gleðilegt.“ rður þar sem
- Thelma B. Gísladóttir, aðstoðarskólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum.
„Fyrirlesturinn var virkilega áhugaverður og aðdáunarvert hvað Veiga var opinská um allar sýnar lífsraunir. Það var virkilega gaman að sjá hvað hún náði salnum strax frá fyrstu mínútu og braut ísinn, allt í einu voru menn orðnir ófeimnir að spyrja hina ýmsu spurninga. Erindið var fræðandi ar verða kvikmy
og virkilega skemmtilegt og sýnir manni á sama tíma hvað það er nauðsynlegt að allir fái að vera þeir sjálfir og blómstra.“
- Lionsklúbbur Patreksfjarðar
„Saga Veigu var átakanleg en með einlægni og “dash” af húmor fór hún yfir baráttu sína við sjálfa sig og hvernig henni tókst að komst yfir eigin hindranir. Veiga var mjög opinská og náði góðu samtali við hópinn og gaf þannig dýpri innsýn í líf sitt. Hvetjandi erindi um að hlusta á sitt innra sjálf og að fylgja draumum sínum.“
- Vöruþróun Marel
„Veiga kom til okkar með hádegisfyrirlestur og fjallaði um þegar hún réri á kajak rangsælis í kringum Ísland og varð þar með fyrsta íslenska konan til að róa hringinn og fyrsta allra að róa hringinn rangsælis. Auk þess að fjalla um þessa ferð þá fjallaði fyrirlesturinn um reynslu hennar af því að ganga í gegnum kynleiðréttingaferli og þá erfiðleika sem hún gekk í gegnum þá en á þeim tíma reyndi hún sjálf að taka líf sitt. Metmæting var á fyrirlesturinn og mikið spurningarflóð frá viðstöddum. Virkilega flottur fyrirlestur um djúpa dali og mikla sigra. Veiga fær okkar bestu meðmæli.“ in reynslu og sögur.
- Starfsmannafélag BYKO
UPPLÝSINGAR
Staðsetning: Menningarhúsinu Bergi á Dalvík
Dagsetning: 19.06.25
Tími: 17:00
Fyrirlesturinn er um ein klukkustund að lengd
