Raddir gegn hatri - námskeið í gagnræðu

Hvernig bregðumst við við fordómum, hatursorðræðu og særandi umræðu án þess að missa von, yfirvegunina eða röddina okkar?

Ergi, félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi, býður í samstarfi við SHA, stúdentafélag Háskólans á Akureyri og Samtökin ’78, upp á námskeið í gagnræðu í tilefni Hinseginhátíðar Norðurlands Eystra.
Gagnræða er aðferð til að mæta skaðlegri og fordómafullri orðræðu af yfirvegun og með staðreyndir, mannúð og hugrekki að vopni. Hún snýst ekki um að standa í eða vinna rifrildi heldur um að rjúfa vítahring hatursorðræðu, minna á mikilvægi virðingar í samskiptum og umtali og skapa rými fyrir skilning, öryggi og uppbyggilegt samtal.
Á námskeiðinu verður farið yfir það hvernig við getum brugðist við þegar við verðum vitni að fordómum, hvort sem það gerist á samfélagsmiðlum, í skólastarfi, í pólitískri umræðu, á vinnustað, í fjölskylduboðum eða á kaffistofunni. Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að spyrja góðra spurninga, leiðrétta rangfærslur, setja mörk og koma jákvæðum sjónarmiðum á framfæri.
Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður hinsegin fólki, stúdentum og aðstandendum þeirra en er opinn öllum. Við bjóðum sérstaklega skóla-, stjórnmála- og framlínustarfsfólk velkomið, enda skiptir miklu máli að fólk sem vinnur með öðrum hafi verkfæri til að bregðast við fordómum af öryggi, virðingu og ábyrgð.
Þetta er námskeið fyrir öll sem vilja láta gott af sér leiða, standa með jaðarsettum hópum og taka þátt í að byggja upp öruggara, hlýrra og réttlátara samfélag.

UPPLÝSINGAR

Staðsetning: Háskólinn á Akureyri (nánari staðsetning verður send í tölvupósti til allra þeirra sem skrá sig)
Dagsetning: 18. júní 2026
Tími:  Kl. 18:00–20:00



DEILA

Fleiri fréttir og viðburðir

Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 3. júní 2026
tónleikar í Svarta Kassanum í Hofi á Akureyri
Maður með regnbogahúfu stendur á útiviðburði og snýr að mannfjölda nálægt byggingu.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 2. júní 2026
Hinseginbaráttan, stúdentahreyfingin og mikilvægi þess að taka pláss!
Veggspjald fyrir gönguferð um hinsegin sögu með regnbogatexta, upplýsingum um gleðihátíðina og fundarstað á Minjasafninu á Akureyri
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 2. júní 2026
Discover the history of Iceland’s queer community on a free guided city walk!