Í fótspor þeirra

 tónleikar í Svarta Kassanum í Hofi á Akureyri

Í fótspor þeirra eru tónleikar og sögukvöld sem haldnir eru á Kvenréttindadeginum 19. júní og eru jafnframt hluti af dagskrá Hinsegin daga á Norðurlandi.

Á tónleikunum fylgjum við slóðum listafólks sem lét rödd sína heyrast og notaði tónlistina til að tjá vonir, mótmæli, frelsisþrá og mannlega reynslu. Á milli laga eru stuttar frásagnir sem tengja saman sögur tónskálda og flytjenda á borð við Billie Holiday, Nina Simone, Joni Mitchell, Joan Baez, Kate Bush, Tracy Chapman, k.d. lang, Dusty Springfield og fleiri.

Efnisskráin spannar jazz, blues, folk og popptónlist og leiðir áhorfendur í gegnum ólík tímabil og ólíka baráttu fyrir sýnileika, frelsi og réttlæti. Þar mætast sögur svartra listamanna, kvenna og hinsegin fólks sem hafa haft áhrif á samfélagið með tónlist sinni.

Tónleikarnir eru jafnframt persónuleg ferð þar sem frumsamin lög tengja sögurnar við samtímann og spyrja hvað þessar raddir geti enn kennt okkur í dag.

Þetta eru því ekki hefðbundnir tónleikar heldur tónlistarleg frásögn um hugrekki, samkennd, sýnileika og von.


UPPLÝSINGAR

Staðsetning: Svarti Kassinn í Hofi
Dagsetning: 19.06.25
Tími: 20.00

Miðasala fer fram í gegnum www.mak.is


DEILA

Fleiri fréttir og viðburðir

Fjölskyldufundur á bókasafninu í Eyjafjarðarsveit, texti á móti lituðum bókahaug.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 12. júní 2026
Föndrum nælur, lyklakippur, vinaarmbönd og fleira
Sólsetursplakat fyrir sundnámskeið í Eyjafjarðarsveit, með sundlaug, regnboga og tímanum 16:00–17:00.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 12. júní 2026
Regnbogalitir, tónlist og frítt í sund fyrir öll milli kl. 16-17
Veggspjald fyrir viðburðinn Regnbogabók fyrir bókasafnið, með íslenskum texta, 18. júní frá kl. 14:00 til 16:00.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 12. júní 2026
Hinsegin einstaklingar miðla sinni reynslu og bjóða upp á opið spjall