Hinnblástur

Hinseginbaráttan, stúdentahreyfingin og mikilvægi þess að taka pláss!

Stúdentar hafa sjaldan beðið kurteisislega eftir samfélagsbreytingum. Þeir hafa mætt, skrifað, mótmælt, skipulagt sig, tekið pláss og krafist þess að háskólar og samfélög verði betri, sanngjarnari og réttlátari fyrir öll sem þeim tilheyra. Barátta hinsegin fólks á sér sömu sögu: sögu fólks sem neitar að vera ósýnilegt.

Hinnblástur tengir þessar sögur saman.

Á viðburðinum skoðum við hvernig stúdentahreyfingin og réttindabarátta hinsegin fólks hafa mætt hvor annarri í samvinnu fyrir frelsi, sýnileika og mannréttindum. Við veltum því fyrir okkur hvernig háskólar hafa verið rými fyrir gagnrýna hugsun, róttækar hugmyndir og nýja samfélagssýn, en líka hvernig stúdentar hafa ítrekað þurft að minna stofnanir á að frelsi, jafnrétti og inngilding verða ekki til af sjálfu sér. Réttindi og áhrif verða nefnilega ekki til í tómarúmi. Þau verða til þegar fólk kemur saman, talar upphátt, spyr óþægilegra spurninga og neitar að sætta sig við að sum fái minna rými eða færri tækifæri en önnur.

Í tilefni Hinseginhátíðar á Norðurlandi Eystra býður SHA, stúdentafélag Háskólans á Akureyri, í samstarfi við Ergi, félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi, til viðburðarins Hinnblástur. Viðburðurinn er tileinkaður hinsegin stúdentum, sögu baráttunnar og þeirri lifandi staðreynd að háskólasamfélagið verður sterkara þegar fleiri raddir fá að heyrast.

Á dagskrá verður fræðsla og fyrirlestur um tengsl hinsegin fólks og stúdentahreyfingarinnar, með áherslu á sýnileika, samstöðu og hlutverk stúdenta í samfélagsbreytingum. Á meðan á fræðslu stendur og að henni lokinni verður opin smiðja þar sem þátttakendur geta undirbúið skilti, slagorð og skilaboð fyrir þátttöku stúdenta í hinsegingöngum í Hrísey og Reykjavík. Þar verður hægt að setja eigin rödd á blað: kröfur, gleði, reiði, húmor, von, stolt og allt það sem hefur alltaf knúið réttindabaráttu áfram.

Viðburðurinn er öllum opinn, en hinsegin fólk, stúdentar, aðstandendur þeirra og aðilar háskólasamfélagsins eru sérstaklega hvött til að mæta.

Komdu, taktu pláss og vertu hluti af sameiginlegri sögu stúdenta og baráttu hinsegin fólks!


UPPLÝSINGAR

Staðsetning: Fyrir framan Réttindaskrifstofu stúdenta, Háskólanum á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri
Tímasetning: Fimmtudaginn 18. júní, kl. 16:00–18:00
Opið öllum og nóg að mæta


DEILA

Fleiri fréttir og viðburðir

Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 3. júní 2026
tónleikar í Svarta Kassanum í Hofi á Akureyri
Litríkir partýhattar í krukku við hliðina á regnbogamerkinu „C“ og bleikum pompom-handverkssýningu.
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 2. júní 2026
Námskeiðið veitir verkfæri til að bregðast við hatursorðræðu. Opnað fyrir alla, sérstaklega hinsegin fólk. Taktu þátt 18. júní!
Veggspjald fyrir gönguferð um hinsegin sögu með regnbogatexta, upplýsingum um gleðihátíðina og fundarstað á Minjasafninu á Akureyri
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 2. júní 2026
Discover the history of Iceland’s queer community on a free guided city walk!