Ljósvíkingar í Menningarhúsinu Bergi

kvikmyndin Ljósvíkingar verður sýnd í menningarhúsinu Bergi

Sem hluta af Hinsegin Hátíð verður kvikmyndin Ljósvíkingar sýnd í Bergi. Enginn aðgangseyrir, en kvikmyndasýningin er styrkt af SSNE.


Ljósvíkingar fjallar um æskuvinina Hjalta og Björn sem reka fiskveitingastað í sínum heimabæ yfir sumartímann. Þá dreymir um að geta haft opið allt árið um kring og þegar óvænt tækifæri þess efnis bankar upp á, tilkynnir Björn vini sínum að hún sé trans kona og muni framvegis heita Birna. Þessar breytingar reyna á vináttuna og þurfa þau bæði að horfast í augu við lífið á nýjan hátt til þess að bjarga því sem mestu máli skiptir.


Aðstandendur og starfslið:

Leikstjórn

Snævar Sölvason

Handrit

Snævar Sölvason

Stjórn kvikmyndatöku

Birgit Guðjónsdóttir

Tónlist

Magnús Jóhann Ragnarsson

Aðalframleiðandi

Júlíus Kemp, Ingvar Þórðarson

Búningar

Arndís Ey

Leikmyndahönnun

Gus Ólafsson

UPPLÝSINGAR

Staðsetning: Menningarhúsið Bergi á Dalvík
Dagsetning: 20.06.25
Tími: 20.00

Ókeypis aðgangur


DEILA

Fleiri fréttir og viðburðir

19. júní 2025
Í Akureyrarkirkju
15. júní 2025
Torgið málað, grill og leikir
Eftir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir 14. júní 2025
Húllafjör á Dalvík