Fánasmiðja í Menningarhúsinu Bergi
Fánasmiðja í Bergi á Dalvík
Nú er þjóðhátíðardagur íslendinga nýafstaðinn og þá flöggum við íslenska fánanum. Afhverju gerum við það? Hvað merkir íslenski fáninn fyrir okkur? Öll samfélög heimsins eiga sinn fána, innan samfélaganna eru minni samfélög með sína fána og innan minni samfélaganna eru ennþá minni samfélög. Öll viljum við tilheyra og fánar eru ein leið til þess. Sem hluti af Hinsegin Hátíð ætlum við í Bergi að búa til okkar fána, hvert og eitt. Á staðnum verður efniviður, pappír í öllum litum, litir, lím og skæri, og auðvitað prik til að geta haldið fánanum hátt á lofti!
UPPLÝSINGAR
Staðsetning: Menningarhúsið Bergi á Dalvík
Dagsetning: 18.06.25
Tími: 14.00-16:00
