Húlladúlla í Bergi
Húllafjör á Dalvík
Húlladúllan kemur í Berg og truflar okkur (á besta mögulega hátt!) í fánasmiðjunni, þann 18. júní nk., en það er hluti af Hinsegin hátíðinni okkar. Hún kemur með allt sitt uppáhalds sirkúsdót á pallinn og ætlar að kenna krökkunum sín bestu og skemmtilegustu trix! Húlladúllan mætir kl. 15:00 og verður að leika til 17:00. (Ath, fánasmiðjan er 14:00-16:00, svo vel er hægt að gera bæði!)
UPPLÝSINGAR
Staðsetning: Menningarhúsið Bergi á Dalvík
Dagsetning: 18.06.25
Tími: 15.00-17:00
Enginn aðgangseyrir
