Portrait of a lady on fire í Sambíóunum Akureyri
Bíó paradís & Sambíóin AKureyri bjóða í bíó!
Má bjóða þér frítt í bíó í tilefni Hinsegin hátíðarinnar á Norðurlandi eystra miðvikudaginn 18. júní kl. 20.00 í Sambíóunum Akureyri?
Kvikmyndin Portrait of a Lady on Fire
Hin unga listakona Marianne er ráðin í verkefni að mála portrett af Héloïse, tilvonandi brúði ríkrar fjölskyldu, sem hefur ítrekað neitað að sitja fyrir því hún neitar að giftast manninum sem til stendur að binda hana við. Marianne dulbýr sig sem vinnukonu til að ávinna sér traust hennar en ekki líður á löngu þar til hún verður ástfangin af fyrirsætunni.
Myndin keppti um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni Cannes 2019 þar sem hún hreppti Queer Palm verðlaunin en um er að ræða fyrstu kvikmyndina sem leikstýrð er af konu sem hlýtur þau verðlaun. Einnig hlaut Celine Sciamma verðlaun fyrir besta handritið á hátíðinni.
Myndin verður sýnd á frönsku með íslenskum texta.
Ekki við hæfi yngri en 12 ára.
Aðalhlutverk: Noémie Merlant, Adèle Haenel, Luàna Bajrami
Leikstjóri: Céline Sciamma
Lengd: 119 mín.
Ókeypis er á sýninguna en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir miðum á þessu eyðublaði HÉR
UPPLÝSINGAR
Staðsetning: Sambíóin á Akureyri
Dagsetning: 18.06.25
Tími: 20.00
Sýningin er í boði Bíó Paradís og Sambíóana á Akureyri
