Sæktu um styrk!
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18.–21. júní 2026.
Nú er hægt að sækja um styrk til þess að standa fyrir viðburði á hátíðinni.
Upphæðir styrkja geta verið á bilinu 50.000-300.000 kr. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl nk. Sótt er um með því að fylla út rafrænt umsóknarblað HÉR.
Hafir þú einhverjar spurningar í tengslum við styrki og hátíðina þá ekki hika við að heyra í okkur í netfanginu: hinseginhatid@akureyri.is
Saman sköpum við fjölbreytta og eftirminnilega hátíð!

