Hinsegin hátíð í Eyjafjarðarsveit
Velkomin á viðburðir í eyjafjarðarsveit í tilefni af Hinsegin hátiðinni!
Kl. 08.00 Vinnuskólinn málar regnbogagangbraut
Kl. 12.00-14.00 Fjölskylduföndur á bókasafninu í Eyjafjarðarsveit. Meðal annars verður hægt að föndra nælur, lyklakippur, vinaarmbönd og fleira.
Kl. 14.00-16.00 Lifandi bókakaffi á bókasafninu í Eyjafjarðarsveit. Þar verður hægt að eiga í góðu og opnu spjalli við hinsegin einstaklinga sem eru tilbúnir að deila reynslu sinni og taka opin við spurningum frá gestum. Boðið verður upp á kaffi og kleinur og því tilvalið að grípa sér bolla, velja sér bók og eiga opið spjall.
16.00-17.00 Regnbogasund í sundlaug Hrafnagils. Það verður frítt í sund fyrir alla á milli 16:00 - 17:00. Sundlaugin verður skreytt í regnbogalitum og skemmtileg tónlist fær að óma yfir sundlaugarbakkann.
20.30 Skógarböðin - Hljómsveitin TÁR sem skipuð er af þeim Elínu Ey og Zöe Ruth Erwin mun spila fyrir gesti Skógarbaðanna í tilefni af Hinsegin hátíð norðurlands Eystra.
UPPLÝSINGAR
Staðsetning: Víðsvegar í Eyjafjarðarsveit
Dagsetning: 18. júní 2026
Ókeypis í alla viðburðri nema borga þarf aðgangseyri að Skógarböðunum.




